Dagarnir eru búnir að líða ansi hratt hér úti sem er bara gott. Búið að vera brjálað að gera í bs, skólanum og gestagangi. Þetta var frekar fyndið þar síðasta föstudagskvöld þá hringdi mamma í mig bara svona að spjalla og svo sagði hún við mig er nokkuð laust pláss hjá ykkur næsta þriðjudag, ég notla bara svaraði JÚ og næsta dag voru þau búin að bóka flug til okkar á þriðjudeginum, akkurat þegar Sigfríð (föðuramma AFP) og Valdís(mamma hennar Rakelar) myndu fara. Þannig að Rakel bauðst til þess að bíða eftir gömllu hjónunum á flugvellinum því hún var að fara með Aron freyr og ömmurnar á flugvöllinn þannig að mikið er búið að gerast. Svo var pabbi og co hjá okkur vikuna á undan og þau fóru á sunnudeginum og ömmurnar komu á fimmtudeginum og gömlu hjónin komu á þrijudeginum. Nokkuð óskilanlegt en þið bara commentið ef þið skiljið mig ekki og viljið vita eitthvað meira.
Annars mjög gott að frétta af okkur. Reyndar gerðist svolítið í kvöld hjá okkur. Við fundum svo mikla gaslykt og kölluðum á nágrannan okkar og spurðum hann um gasmálin í HOLLANDI en hann fann ekki neitt, en sagði samt að konan fyrir neðan okkur gæti verið að gera eitthvað, þannig að við slöppuðum af og fórum bara eitthvað að bralla. Svo þegar ég kom niður þá var þvílík lykt ég kallaði á allt liðið og við öll í útiföt og ÚT með okkur. Bönkuðum og bönkuðum hjá nágranna okkar fyrir neðan okkur en ekkert svar. Svo kom annar nágranni og hann fór upp og sagði okkur að hringja strax í eigandann og hann notla kærulausasti náungi í öllum heiminum hva hva hva hva æ hann er soldið skrítinn. Svo kom loksins nágranni okkar út fyrir neðan okkur NEI þá var mín að gera eitthvað HOLLENSKT sem við vitum ekkert hvað er með þá GASI vá GAT hún ekki látið okkur vita. NEI æ æææ.
Þannig að öll fjölskyldan fór upp aftur og bara í smá kæruleysi að spila póker.
Afsakið málfar og stafsetningu þetta er skirfað í algjöru flýti.
Kv H.Jóa




















